|
ÚTBÚNAÐUR FYRIR LAUGAVEGSHLAUP
Fatnaður
Hvít derhúfa til að hindra sól og rigningu í augu.
Þunnir hanskar eða vettlingar.
Stutterma eða síðerma bolur, fyrsta hluta leiðarinnar getur verið gott að vera í léttum jakka yfir eða bol.
Hlaupanærur til að útiloka nuddsár.
Stuttbuxur, hnébuxur þunnar eða síðar tights.
Sokkar þunnir eða þykkari eftir smekk. Fleiri nota sokka sem eru þykkari að neðan til að finna ekki eins fyrir sandi sem kemur inn í skóna á leiðinni.
Skór
Utanvegaskór sem losa vatn vel með grófum sóla. Enn betra er ef þeir eru léttir og mátulega stífir í sóla. Annar kostur eru léttir æfingaskór sem losa vatn vel. Þriðji og síðsti kosturinn er að hlaupa á venjulegum æfingaskóm sem losa vatn vel út. Annar skófatnaður sem losar vatn ekki vel á að útiloka.
Vökvi og orka
Drykkjarbelti eða handbrúsi sem tekur að lágmarki 650ml.
Vökvatap líkamans er við venjulegar aðstæður 500ml per klst.
Varast skal að drekka of mikið, jafnt slæmt og að drekka og lítið.
Missi maður 2% af líkamsþyngd í vökva þá slaknar árangur um 10%, missi maður 4% af líkamsþyngd í vökva þá slaknar árangurinn um 20%.
Orkugel max 10-12 . Sumir taka líka inn orkuduft; 1-3 bréf á leiðinni.
Þeir hlauparar sem eru lengur en 5 og hálfan tíma á leiðinni er ráðlagt að borða eitthvað líkar, eitthvað sem þeir eru vanir, orkukex, banana eða eitthvað annað.
Ekki er lengra á milli drykkjarstöðva á leiðinni en 10km.
Sumir nota úlnliðsband til að þurrka af sér svitann.
Bodyglide eða vaselín
Muna skal að smyrja sig vel kremi á fætur, nára, geirvörtur, læri og aðra þá staði sem möguleiki er að verða fyrir nuddi og álagi á leiðinni. |