Heimkeyrsla og póstsending á New Balance skóm


Afreksvörur leita stöðugt að nýjum leiðum til að bæta þjónustu sína. Eitt stærsta vandamálið við rekstur hlaupavöruverslunarinnar hefur verið að halda nógu stóran lager af skóm. Þetta vandamál höfum við ákveðið að leysa með þeim hætti að séu skórnir ekki til, verða þeir keyrðir heim til kaupanda, daginn sem skórnir berast til landsins. Bið eftir skóm sem pantaðir á þennan hátt á ekki að vera lengri en 2 vikur, séu skórnir til hjá birgjum okkar erlendis. Þessi þjónusta nýtist ekki einungis þeim sem ekki finna skó á lager, heldur líka þeim sem hafa áður keypt New Balance hlaupaskó og vilja endurnýja, þá þarf að senda upplýsingar um skótýpu og US (6-14) skóstærð.

 

Hægt er að greiða skóna í verslun Afreksvara í Glæsibæ eða að senda póst með kvittun úr heimabanka á afrek@afrek.is.

 

Heimkeyrslutilboðið gildir fyrir höfuðborgarsvæðið en einnig er hægt að fá skóna senda í pósti, hvert á land sem er.

 

Heimkeyrslan er ókeypis en greiða þarf burðargjald af póstsendingum
Afreks-vörur Glæsibær 104 Reykjavík Sími 553-1020 0pið mán-föst.11-18
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'float.php' for inclusion (include_path='.:') in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84