|
|
Daníel Smári Guðmundsson er fæddur 6. Nóvember 1961. Eigandi einu sérverslunarinnar fyrir hlaupara á Íslandi; Afreksvörur í Glæsibæ. Sérhæfir sig í að veita hlaupurum sem og öðrum sérhæfða ráðgjöf og aðstoð varðandi hlaupabúnað, s.s. göngugreiningu, skó, fatnað og annan útbúnað. Á að baki glæstan feril sem hlaupari.
Hefur tekið þátt í yfir 450 keppnishlaupum í hlaupagreinum frá 400 m upp í ultra maraþon (56 km og yfir) frá árinu 1985 til dagsins í dag. Sigurvegari í yfir 150 keppnishlaupum og hefur auk þess unnið fjölmarga Íslandsmeistaratitla í mörgum hlaupavegalengdum. Landsliðsmaður í 3000 m hindrunarhlaupi á árunum 1987-1999 og Norðurlandameistari öldunga í þeirri grein 1999 og 2001. Keppti í hlaupum fyrir USAH, KR, Ármann, ÍR og FH á árunum 1985 – 2006. Hefur auk þessa keppt í mörgum maraþonhlaupum og víðavangshlaupum hérlendis sem erlendis og á næst besta tíma Íslendings í maraþonhlaupi frá upphafi. Sigurvegari Laugavegshlaupsins árið 2008. Verður hér staðar numið en ekki er allt upptalið.
Hefur notið leiðsagnar fremstu þjálfara landsins. Hefur sótt leiðbeiningar- og þjálfaranámskeið í frjálsíþróttum og knattspyrnu.
Þjálfari hlaupahóps Flugleiða á árunum 1997 – 2000. Leiðbeinandi hlaupahóps Glitnis árið 2007, 2008 og 2009. Skipulagði starf hóps hlaupara fyrir Laugavegshlaupið og Frankfurtarmaraþonið 2009. Leiðbeinir nú meðlimum Afrekshópsins sem stofnaður var í ágúst 2009.
Besti árangur:
• 400 m 54:7 sek.
• 800 m 1:57 mín.
• 1000 m 2:29 mín.
• 1500 m 3:59 mín.
• 3000 m 8:40 mín
• 3000 m hindrun 9:17 mín.
• 5000 m 15:11 mín.
• 10.000 m 31:57 mín.
• 10 km götuhlaup 32:06 mín.
• ½ maraþon (21.1 km) 1:09:45 mín.
• Maraþon (42.2 km) 2:28:30 mín. næst besti tími frá upphafi
• Laugavegshlaup (ultra maraþon) 4:54 klst.
|
|