Laugavegurinn 2010.

Allt er mögulegt, viltu ná hámarksárangri í götu- og utanvegarhlaupum. Daníel Smári Guðmundsson sigurvegari Laugavegshlaupsins 2008 mun þann 1. marz byrja með undirbúningsnámskeið fyrir hið geysivinsæla Laugavegshlaup í samvinnu við Bændaferðir og afrek.is. Kynningarfundir verða fimmtud. 3. og 10. febrúar kl. 20:00

Í húsnæði Bændaferða Síðumúla 2.  

 

Uppbygging námskeiðs:

Markmið sett

Hver og einn setur sér raunhæft takmark til að stefna að. Þegar búið er að setja sér raunhæft markmið er sett upp raunhæf áætlun til að vinna eftir bæði langtíma og styttri áætlun. Vikuleg æfingaáætlun er gerð fyrir hvern og einn. Markmiðið verður alltaf að vera raunhæft og áhugavert og taka mið af núverandi getu og aldri. Það geta allir náð markmiðum sínum svo framalega sem unnið er rétt að því að ná þeim. Framkvæmdin skiptir öllu máli.. Sameiginlegar æfingar verða tvisvar til þrisvar í viku.

 

Þjálfunaráætlanir í samræmi við markmið. Æfingar settar upp eftir mikilvægi.

Vikuleg æfingaáætlun gerð fyrir hvern og einn. Hver og einn skráir æfingar sínar inn á hlaupadagbókina þar sem leiðbeinandinn Daníel Smári fylgist með hvernig gengur.  

 

Þjálfun

Áhersla lögð á þjálfun allra helstu þátta s.s. grunnþol-, hraða-, hraðaúthald-, styrk-,  tækni-, og andlegan styrk, auk þess unnið í þjálfuninni með púls til að ná fram sem bestum gæðum. Stigvaxandi æfingarálag og ákefð sem þú ræður við og fjölbreytni eykur líkurnar á hægum jöfnum framförum og eykur ennfremur líkur á því að þú gerir hlaup að lífstíl sem þú hefur ánægju af.

Þjálfun felur í sér 2 til 3 fastar sameiginlegar æfingar á viku undir leiðsögn Daníels að öðru leyti fer hver og einn eftir sinni áætlun.

 

Skráning

Allir hlauparar hvar sem er á landinu eru hvattir til að skrá sig og njóta leiðsagnar eins sigursælasta og reynslumesta hlaupara landsins. Allir þátttakendur fá sérstakt afrekskort  sem gefur þeim kost á afsláttarkjörum í Afreksvörum sérverslun hlauparans. Einnig fá þeir Laugavegshlauparar sem sækja námskeiðið 30% afslátt af sérvöldum Trail utanvegaskóm.

Verð: Mánaðargjald kr. 6.000.-.  5 mánuðir (20 vikur) fram að Laugavegshlaupi.

Ef borgað er í einu lagi fyrir 15. mars. kr. 20.000.- ( mánaðargjald kr. 4.000.- )

ATH. Fjarþjálfun kr. 2.000.- (hlaupari skráir sig á hlaup.com og fær æfingaáætlanir og leiðsögn á vefnum).

 

Skráning sendist á tölvupóstfangið danielsmari61@gmail.com. Einnig í síma 8962820.

 

Smá úrdráttur úr hlaupaferilsskrá Daníels Smára Guðmundssonar:

Einn reynslumesti hlaupari landsins. Margfaldur Íslandsmeistari í hlaupum.

Landliðsmaður í 3000m hindrunarhlaupi til margra ára og Norðurlandameistari öldunga í þeirri grein. Næst besti maraþonhlaupari landsins frá upphafi. Sigurvegari Laugavegs-hlaupsins á síðasta ári. Daníel hefur notið leiðsagnar allra fremstu þjálfara landsins og hefur yfir 25 ára reynslu af hlaupum allt frá 800m upp í ultra maraþon.

 

Afreks-vörur Glæsibær 104 Reykjavík Sími 553-1020 0pið mán-föst.11-18
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'float.php' for inclusion (include_path='.:') in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84