Undirbúningsnámskeið fyrir Hamborgar maraþonið 2010


Allt er mögulegt og ef þú vilt ná hámarksárangri í maraþoni gæti sérstakt undirbúningsnámskeið hjá Daníel Smára verið tilvalið. Daníel Smári Guðmundsson er einn reynslumesti maraþonhlaupari landsins og hefur hann síðustu ár sérhæft sig í einstaklingsbundinni markmiðasetningu og námskeiðum fyrir þá sem vilja ná lengra. Undirbúningurinn stendur í 12 vikur fram að maraþoni Námskeið hefst 25.janúar. 
Einnig er boðið upp á fjarþjálfun fyrir þá sem búa út á landi.


Uppbygging námskeiðs:

Markmið sett

Hver og einn setur sér raunhæft takmark til að stefna að. Þegar búið er að setja sér raunhæft markmið er sett upp raunhæf áætlun til að vinna eftir bæði langtíma og styttri áætlun. Markmiðið verður alltaf að vera raunhæft og áhugavert og taka mið af núverandi getu og aldri. Það geta allir náð markmiðum sínum svo framalega sem unnið er rétt að því að ná þeim. Framkvæmdin skiptir öllu máli.

 

 

Þjálfunaráætlanir í samræmi við markmið. Æfingar settar upp eftir mikilvægi.

Vikuleg æfingaáætlun gerð fyrir hvern og einn. Hver og einn skráir æfingar sínar inn á hlaupadagbókina þar sem leiðbeinandinn Daníel Smári fylgist með hvernig gengur.

 

 

Þjálfun

Áhersla lögð á þjálfun allra helstu þátta s.s. grunnþol-, hraða-, hraðaúthald-, styrk-,  tækni-, og andlegan styrk, auk þess unnið í þjálfuninni með púls til að ná fram sem bestum gæðum. Þjálfunin felur í sér 2 til 3 fastar sameiginlegar æfingar á viku undir leiðsögn Daníels að öðru leyti fer hver og einn eftir sinni áætlun. Stigvaxandi æfingarálag og ákefð sem þú ræður við og fjölbreytni eykur líkurnar á hægum jöfnum framförum og eykur ennfremur líkurnar á hámarksárangri í maraþoninu í Hamborg.

 


Skráning

Allir hlauparar hvar sem er á landinu eru hvattir til að skrá sig og njóta leiðsagnar eins sigursælasta og reynslumesta hlaupara landsins. Núna er tækifærið til að stórbæta  árangur sinn í stórbrotnu Hamborgar maraþoni. Allir þeir sem skrá sig í maraþonið fá sérstakt afrekskort sem gefur þeim kost á afsláttarkjörum í sérverslun hlauparans Afreksvörum Glæsibæ. Einnig 40% afslátt af sérvöldum Maraþon keppnisskóm fyrir maraþonið.

ATH. Hlauparar á landsbyggðinni. (hlaupari skráir sig á hlaup.com og fær æfingaáætlanir og leiðsögn á vefnum).

Skráning á undirbúningsnámskeiðið fer fram hjá Daníel Smára í versluninni Afreksvörum í Glæsibæ eða með því að senda póst á tölvupóstfangið danielsmari61@gmail.com.

Afreks-vörur Glæsibær 104 Reykjavík Sími 553-1020 0pið mán-föst.11-18
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84

Warning: include() [function.include]: Failed opening 'float.php' for inclusion (include_path='.:') in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84