Ný og þróaðri útgáfa af toppskónum 1224. Öflugri dempunarpúðar sem gefa meira viðnám og dempun. Núna geturðu hlaupið lengra og meira. Skór fyrir þá sem vilja aðeins trausta og stöðuga skó sem bjóða upp á það besta í dempun, sveigjanleika, mýkt og stöðugleika. Hentar þeim sem eru með lítinn til meðal innhalla.
Helstu eiginleikar Eitt af flaggskipum New Balance. Háþróað dempunar og stuðningskerfi gefa skónum frábæran stöðugleika og dempun. Sameina allt það sem hlauparar sækjast eftir. Sterk og þægileg sokklaga yfirbygging með góðri loftun og N-DURANCEslitsterka gúmmíblanda á lendingarsvæði hælsins gerir 1225 skóinn mjög endingargóðan og hentugan til lengri hlaupa sem og styttri.
Dempun ABZORB dempunarpúðar eru undir öllum skónum. ABZORB DTS háþróaða dempunarkerfinu er bætt við í framhlutann og hælinn en það veitir fullkomna dempun. Dempandi ABZORB innlegg í skónum eykur dempun og þægindi enn frekar og gerir skóna óviðjafnanlega. Í 1225 er nýjungin ABZORB FLsem vinnur á þann hátt að þeir kraftar sem myndast við snertingu fótar við undirlag dreifast og deyfa höggið sem færi annars gegnum skóinn og upp í fótinn og líkamann (þess konar högg geta valdið hæl, ökkla og jafnvel bakverkjum).
Stöðugleiki TS2 innanfótarstýring, stífust við hælinn og örlítið mýkri við tærnar og kemur í veg fyrir að skórinn skekkist inná við í niðurstiginu. Stýrir líka yfirfærslunni frá hæl og frammá tábergið. STABILITY WEB platan hefur verið stækkuð og veitir meiri stuðning aftur á hælin og fram á skóinn auk stuðning undir miðjan skóinn, eykur sveigjanleikann og gerir hann léttari. Frábær hælkappi er í skónum sem eykur stöðuleika hans og heldur sérlega vel við ökkla og tekur álag af hásinum og kálfum.
Miðsóli ACTEVA hágæða miðsólarefni sem nær yfir allan sólann gefur skónum auka dempunog eykur endingu hans.
Aðrar upplýsingar
Þyngd: 355 gr. (kk.) stærð 8-12 US.
Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84
Warning: include(float.php) [function.include]: failed to open stream: No such file or directory in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84
Warning: include() [function.include]: Failed opening 'float.php' for inclusion (include_path='.:') in /var/www/vhosts/afrek.is/httpdocs/templates/template3/back.php on line 84